Brautskráning 2018

Ljúfir tímar líða frá 
og látlaust ylja hal
dagur geymast mildur má
í minninganna sal.

Aldrei gleymast æskubjörg
sem áður klyfu menn
Laugaskóla minning mörg
hér marga gleður enn

Gengið er um gæfuhlið
ég gjarnan stolts til finn
já Laugamenn æ lifna við
er líta skólann sinn.

Færðu inn athugasemd